Við ætlum að:
- Fegra land Hafnarfjarðar enn frekar með fjölgun trjáa, stefnt er á 20 þúsund tré á ári
- Setja aukinn kraft í umhirðu á grænum opnum svæðum
- Lífga uppá miðbæinn með ævintýragarði fyrir börn, t.d. á Thorsplani
- Fara fram á endurskoðun á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins m.t.t. fjármögnunar og forgangsröðunar verkefna
- Sameina skóla- og frístundaakstur og almenningssamgöngur innanbæjar
- Tryggja fjármagn frá ríki í lausnir vegna umferðar við Lækjargötu
- Setja Ofanbyggðarveg aftur á dagskrá
- Fá úrbætur á Flóttamannavegi sem tryggir öryggi og aukið flæði umferðar