Salur til leigu - Norðurbakki 1a, 220 Hafnarfjörður

Veislusalur til leigu, hentar vel fyrir fundi og minni veislur s.s. skírnarveislur og fermingarveislur og tekur um 40-55 manns í sæti. Veitingar fylgja ekki salnum. Salurinn er eingöngu leigður út fyrir dagveislur og fundi á tímabilinu 8:00 – 22:00.

Leiguverð er 45.000 auk 15.000 kr. þrifagjalds.

Nánari upplýsingar og bókanir í gegnum netfangið nordurbakki.salur@gmail.com

Aðstaðan

Skilmálar

Greiðandi salarleigu telst leigjandi og ábyrgðarmaður. Leigjandi ber persónulega ábyrgð á því að skilmálum sé fylgt í hvívetna. Með greiðslu leigu telst leigjandi hafa samþykkt skilmálana. 

Leigjandi þarf að hafa náð 25 ára aldri. Óheimilt er að reykja í húsnæðinu. Áfengissala er ekki heimil í salnum. Óheimilt er með öllu að veita börnum og ungmennum undir áfengiskaupaaldri áfengi. Ganga skal vel um eignina og búnað hennar.

Salurinn er staðsettur í íbúðarhúsnæði og skulu leigutakar sýna tillitssemi við íbúa. Allt ónæði, þar með talið tónlistarflutningur og samkvæmishávaði, er bannað eftir kl. 22:00. Leigutakar skulu ganga frá salnum í samræmi við þessa skilmála og fjarlægja eigur sínar úr salnum fyrir miðnætti þann dag sem leigu lýkur.

Ef salurinn er ekki í útleigu daginn áður er heimilt að skreyta sal og stilla upp deginum áður skv. samkomulagi við umsjónarmann.  Borðbúnaður, hreingerningarvörur og helstu heimilistæki eru til staðar í salnum og leigjanda er heimilt að nýta það.

Óheimilt er að líma neitt á loftaplötur. Óheimilt er að nota límbólur eða límband með sterku lími neins staðar.  Áskilinn er réttur til að innheimta sérstaklega fyrir skemmdir eða annan kostnað sem leigjandi kann að valda. Ekki er innheimt aukalega fyrir minniháttar tjón s.s. brotin glös en leigjendur eru beðnir um að láta vita ef eitthvað brotnar eða bilar svo hægt sé að bæta úr.

Salnum skal skilað eins og komið var að honum og allt rusl fjarlægt. Allt límband skal tekið og skreytingar skulu fjarlægðar áður en sal er skilað. Þrífa þarf allt leirtau og ganga frá í skápa.  Tæma skal og slökkva á uppþvottavél, slökkva á kaffikönnu og henda kaffikorgi. Frekari þrif eru innifalin í þrifgjaldi. Ljós skulu slökkt, gluggum lokað og hurðum læst. Lykli skal skilað í lyklabox við inngang og umsjónarmaður látinn vita þegar leigjandi yfirgefur salinn svo hægt sé að setja öryggiskerfið aftur á.

Leiga er ekki endurgreidd ef vísa þarf leigjanda úr salnum sökum brota á skilmálum. 

 
Scroll to Top