Við Sjálfstæðismenn ætlum að...
- Lækka áfram fasteignagjöld og útsvar í Hafnarfirði
- Hækka heimgreiðslur í 250 þúsund frá 12 mánaða aldri og niðurgreiðslu með börnum hjá dagforeldrum
- Draga úr álagi í grunnskólum með færri börn í hverjum bekk og tryggja aðgengi að sérfræðingum
- Auka fjármagn til viðhalds skólahúsnæðis og skólalóða og stækka húsnæði Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
- Fara fram á endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins m.t.t. fjármögnunar og forgangsröðunar verkefna
- Setja ofanbyggðarveg aftur á dagskrá og ná fram nauðsynlegum úrbótum á Flóttamannavegi
- Sameina skólaakstur, frístundaakstur og almenningssamgöngur innan Hafnarfjarðar
- Byggja upp íbúðakjarna fyrir eldra fólk, þar sem þjónusta, öryggi og öflugt félagslíf fer saman
- Tryggja raunhæfan stuðning og samfellu í velferðarþjónustu
- Halda áfram að þróa og skapa tækifæri í atvinnu og virkni fyrir fatlað fólk
- Skipuleggja ný hverfi með fjölbreyttu húsnæði sem hentar fjölskyldum og fólki á ólíkum æviskeiðum
- Leggja áherslu á framúrskarandi skilyrði fyrir fyrirtæki til að vaxa og dafna í Hafnarfirð
- Fegra land Hafnarfjarðar enn frekar með fjölgun trjáa og fleiri grænum svæðum
- Gera íþróttahúsið á Strandgötu að menningarhúsi og efla þannig enn frekar menningu, listir og afþreyingu fyrir íbúa og gesti
- Auka þjónustu við sundlaugagesti með lengri opnunartíma sundlauga og hefja vinnu við stækkun útisvæðis Ásvallalaugar
- Tryggja að Hafnarfjörður verði áfram í fremstu röð með aðstöðu til íþrótta og hreyfingar, byggja íþrótta- og tómstundamiðstöð í Hamranesi og skipuleggja nýjan golfvöll