Frambjóðendur eru hvattir til að kynna sér vel prófkjörsreglur flokksins sem og þau ákvæði sem finna má í skipulagsreglum Sjálfstæðisflokksins varðandi prófkjör og framboðsmál.
- Framboðum ber að skila til kjörnefndar á þessari slóð fyrir kl. 15 þann 20. janúar 2022
- Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu sveitarstjórnarkosningum.
- Hver frambjóðandi skal skila inn skriflegum meðmælum með framboði sínu frá 20 flokksbundnum sjálfstæðismönnum búsettum í Hafnarfirði, hið minnsta. Tekið skal fram að enginn meðmælandi má mæla með fleirum en 6 frambjóðendum.
- Frambjóðandi skal vera flokksbundinn sjálfstæðismaður og búsettur í Hafnarfirði.
Hver og einn frambjóðandi skal skila ljósmynd og allt að 200 orða kynningartexta með framboði sínu. Efnið verður notað til að kynna framboðið. Frambjóðendum er að auki heimilt að láta fylgja með ferilskrá og senda með hlekki inn á heimasíðu, samfélagsmiðla og annað sem tengist framboði þeirra.
Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum, eftir að framboðsfresti lýkur.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í gegnum netfangið hafnarfjordur@xd.is eða hjá formanni kjörnefndar, Kristjönu Ósk Jónsdóttur (sími 693-3744)