Samstarfssáttmáli meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisn og Samfylkingar 2026-2030 í Hafnarfirði

Sjálfstæðisstefnan er áberandi í nýjum samstarfssáttmála meirihlutans í Hafnarfirði þar sem ábyrg fjármál, frelsi einstaklinga og öflugt atvinnulíf eru í forgrunni. Samkomulagið byggir á traustum rekstri sveitarfélagsins, einfaldari stjórnsýslu og aukinni skilvirkni án þjónustuskerðingar. Á kjörtímabilinu verður útsvar ekki hækkað og fasteignagjöld munu ekki hækka umfram verðlag. Jafnframt verður ráðist í rekstrar- og stjórnsýsluúttekt til að tryggja betri nýtingu fjármuna bæjarbúa.
Lögð er sérstök áhersla á fjölskyldur og aukið valfrelsi með hækkun heimagreiðslna og auknum stuðningi við dagforeldra. Sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólar fá áfram stuðning og unnið verður að því að einfalda daglegt líf fjölskyldna.
Samstarfið setur einnig atvinnulíf og verðmætasköpun í öndvegi með því að halda álögum á fyrirtæki í lágmarki, tryggja lóðaframboð og bæta þjónustu við fyrirtæki og frumkvöðla. Áhersla verður lögð á öflugt skipulag, uppbyggingu innviða og ábyrga stefnu í málefnum hælisleitenda með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar verður Þórður Þórarinsson.

Scroll to Top